6 Nóvember 2019 11:19

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að heimili í austurborginni morgun einn í vikunni, en þar hafði verið brotist inn og stolið munum af húsráðendum – tölvum, tækjum og öðru fémætu. Á staðnum bjuggu erlendir verkamenn sem hafa oft skamma veru á Íslandi og tjónið því tilfinnanlegt fyrir fólkið, eins og iðulega er með innbrot og þjófnaði. Rannsakari málsins komst fljótlega að því að samstarfsmaður íbúa hafi verið rekinn úr starfi fyrr um daginn og hefði líklega bókað flug úr landi að kvöldi sama dags. Voru því góð ráð dýr og því haft var samband við embætti lögreglustjórans á suðurnesjum og óskað eftir því að viðkomandi aðili yrði stoppaður á leið úr landi og kannað með skóbúnað hans, upp á samanburð við skóför sem fundust á vettvangi. Reyndist hugboð rannsóknarlögreglumannsins rétt, lögreglan á suðurnesjum greip manninn glóðvolgan í Leifsstöð þar sem hann var leið úr landi. Við frekari athugun á manninum reyndust skór hans passa við fótsporið sem rannsakarinn fann á vettvangi. Eftirleikurinn var auðveldur, maðurinn var handtekinn og allt þýfið úr innbrotinu fannst í farangri hans. Málið er á lokastigum rannsóknar.