9 Desember 2021 14:00

Mikilvægt skref er stígið í að bæta þjónustu við þolendur kynferðisbrota hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, en í dag opnaði sérstök Þjónustugátt lögreglu fyrir þolendur kynferðisbrota í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra. Um er að ræða rafræna þjónustugátt þar sem þolendur geta fengið ýmsar upplýsingar um stöðu mála sinna og um þær bjargir sem þolendum standa til boða. Á þetta hefur skort og eftir þessu hefur verið kallað og því er einkar ánægjulegt að sjá Þjónustugáttina verða að veruleika.

Þjónustugáttin mun fyrst um sinn þjónusta þolendur á svæði Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en um er að ræða tilraunaverkefni til eins árs á meðan reynsla fæst á gáttina. Markmiðið er að gáttin verði aðgengileg fyrir alla þolendur óháð umdæmamörkum en unnið verður að því næsta árið í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, önnur lögregluembætti og aðra hagaðila.

Þjónustugátt lögreglu er hluti af aðgerðaráætlun stjórnvalda um meðferð kynferðisbrota frá 2018 en þar er eitt af markmiðunum að bæta upplýsingaflæði til brotaþola.  Er það í samræmi við niðurstöður þjónustukönnunar, sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt meðal þolenda kynferðisbrota frá árinu 2020. Þar kemur fram að 75% svarenda eru ánægð með þjónustu lögreglu en að sama skapi sögðu 88% svarenda að þau hefðu ekki nægilegar upplýsingar um stöðu máls síns. Er gáttinni ætlað að bæta þar úr.

Undanfarin ár hefur verið unnið markvisst að úrbótum hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu þegar rannsóknir kynferðisbrota eru annars vegar. Þar má nefna sérstaklega styttingu málsmeðferðartíma, aukin gæði rannsókna og sérhæfða kærumóttöku. Þjónustugátt lögreglu fyrir þolendur kynferðisbrota bætist nú við, en markmiðið með henni er að bæta enn frekar þjónustu lögreglu í þessum mikilvæga málaflokki.

Þjónustugáttin var opnuð með formlegum hætti á lögreglustöðinni á Hverfisgötu í Reykjavík á hádegi í dag, en háttvirtur innanríkisráðherra, Jón Gunnarsson, opnaði hana formlega. Slóðin er https://mitt.logreglan.is

Meðfylgjandi mynd var tekin við það tilefni, en á henni eru Halla Bergþóra Björnsdóttir lögreglustjóri, Jón Gunnarsson innanríkisráðherra og Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri.