8 Ágúst 2011 12:00

Um helgina voru þrettán ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Tíu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Kópavogi. Fimm voru teknir á laugardag, sex á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru ellefu karlar á aldrinum 17-32 ára og tvær konur á þrítugsaldri. Sjö þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.