17 Júlí 2007 12:00

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta voru stöðvaðir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Átta voru teknir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði, Garðabæ og Mosfellsbæ. Þetta voru tólf karlar og ein kona á fimmtugsaldri. 

Lögreglan stöðvaði sömuleiðis för sex annarra ökumanna í Reykjavík um helgina. Fimm þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Þetta voru allt karlmenn.