8 Mars 2011 12:00

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir víðsvegar í borginni og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Fimm voru teknir á laugardag og átta á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 19-60 ára og fjórar konur, 18-23 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.