4 Júlí 2008 12:00

Fíkniefnadeild LRH hefur að undanförnu unnið að rannsókn málsins sem kom upp á Seyðisfirði um miðjan júní þegar maður var handtekinn með 190 kg af hassi í húsbíl sem kom til Seyðisfjarðar með ferjunni Norrænu.

Miðvikudaginn 2. júlí sl. handtók lögreglan mann á fimmtugsaldri í þágu rannsóknar málsins. Maðurinn var samdægurs úrskurðaður í þriggja vikna gæsluvarðhald. Rannsókn málsins heldur áfram en frekari upplýsingar af gangi hennar verða ekki veittar að sinni.