6 Júlí 2011 12:00

Lögreglan stöðvaði för þriggja ökumanna á höfuðborgarsvæðinu í gær en hinir sömu voru allir undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru tveir karlar á þrítugsaldri og kona um fertugt. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.