9 Janúar 2012 12:00

Um helgina voru þrír ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-41 árs. Einn þeirra hefur aldrei öðlast ökuréttindi.