5 Október 2010 12:00

Um helgina voru þrír ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en þeir voru allir stöðvaðir á sunnudag. Þetta voru tveir karlar á þrítugsaldri og ein kona um tvítugt en í bíl hennar fundust jafnframt fíkniefni.

Í gær voru sömuleiðis þrír ökumenn teknir í borginni fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta eru allt karlar á þrítugsaldri en hinir sömu reyndist líka allir vera próflausir.