24 Ágúst 2007 12:00

Þrír karlar á þrítugsaldri voru teknir fyrir aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í gær. Sá fyrsti var stöðvaður í Kópavogi í gærmorgun en viðkomandi átti mjög erfitt með að halda bíl sínum á veginum. Má hann teljast heppinn að hafa ekki lent í alvarlegu umferðaróhappi en þess má geta að maðurinn var nýbúinn að aka börnum sínum í leikskóla þegar lögreglan stöðvaði för hans. Um hádegisbil var annar karl handtekinn á öðrum stað í Kópavogi en sá yfirgaf bíl sinn og reyndi að komast undan laganna vörðum. Kauði komst hins vegar ekki langt en hann forðaði sér í nærliggjandi fyrirtæki og náðist þar skömmu síðar. Þriðji karlinn var svo handsamaður í Breiðholti nokkru eftir hádegi en í bíl mannsins, sem hafði þegar verið sviptur ökuleyfi, fundust einnig ætluð fíkniefni.

Þá var hálfþrítug kona tekin fyrir ölvunarakstur í nótt en för hennar var stöðvuð í Grafarholti.