3 Ágúst 2007 12:00

Kona á sextugsaldri var tekin fyrir ölvunarakstur í Kópavogi í gærkvöld og för sautján ára stúlku var stöðvuð fyrir sömu sakir á Suðurlandsbraut í nótt. Tvítugur piltur var einnig tekinn fyrir ölvunarakstur í nótt en sá var stöðvaður í Álfheimum.

Síðdegis í gær var karl um fertugt tekinn við akstur á Háaleitisbraut en hann var undir áhrifum fíkniefna.