4 Ágúst 2006 12:00

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, verður notuð við umferðareftirlit alla verslunarmannahelgina. Þetta er samstarfsverkefni lögreglunnar og Landshelgisgæslunnar en með áhöfn þyrlunnar verða menn frá lögreglunni í Reykjavík og ríkislögreglustjóra.

Þetta verður mjög viðamikið eftirlit sem beinist að umferðinni. Þyrlunni verður flogið víða og m.a. yfir útihátíðarsvæði. Rétt er taka fram að TF-SIF, sem er minni þyrla Landhelgisgæslunnar, verður ekki notuð til sjúkraflugs um þessa helgi nema að mjög brýna nauðsyn beri til.