27 Maí 2008 12:00

Á myndbandi sem sent hefur verið til birtingar á netinu má sjá lögreglumann hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu grípa um háls ungs pilts. Um leið og ábendingar bárust lögreglu um þetta myndband fór þegar í stað athugun á því hvenær þetta hafi gerst og hvaða lögreglumaður væri þarna á ferðinni, enda er framgangan með þeim hætti að það krefst að mati lögreglustjóra rannsóknar. Ríkissaksóknara var þegar gert viðvart um þetta atvik vegna alvarleika þess. Að lokinni gagnaöflun síðar í dag verður málið formlega sent ríkissaksóknara til rannsóknar, en hann fer samkvæmt lögreglulögum með rannsókn mála sem snerta meint brot lögreglumanna í starfi.

Ríkislögreglustjóra verður einnig gert viðvart um málið en hann fer með skipunarvald yfir lögreglumönnum og tekur því ákvörðun um hvort lögreglumanninum verður vikið frá störfum um stundarsakir meðan á rannsókn málsins stendur. Fram að því að ákvörðun um það liggur fyrir mun lögreglumaðurinn ekki sinna störfum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.