25 Ágúst 2021 13:51

Skráð voru 895 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júlí og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júlí 2021.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 13 prósent fleiri tilkynningar um þjófnaði en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 111 tilkynningar um ofbeldisbrot í júlí. Eru það færri tilkynningar en í júní. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fækkaði lítilega á milli mánaða en alls voru tilkynnt sjö tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi.

Tilkynningum um heimilisofbeldi fækkaði lítilega á milli mánaða. Alls voru skráðar 56 tilkynningar í júlí. Það sem af er ári hafa hins vegar borist um 15 prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Tilkynningum um eignaspjöll fækkaði töluvert á milli mánaða en alls voru 138 tilkynningar skráðar í júlí. Skráðar voru 32 tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum í júlí en ekki hafa borist jafn margar tilkynningar um nytjastuld síðan í ágúst 2020.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru þrjú stórfelld fíkniefnabrot skráð í júlí.. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði einnig á milli mánaða en tilkynningar þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði nokkuð.

Í júlí voru skráð 746 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 26 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.