17 Mars 2021 13:40

Skráð voru 646 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í febrúar og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir febrúar 2021.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Mestu fækkunina var að sjá á tilkynningum um innbrot í fyrirtæki/stofnanir og innbrot í ökutæki.

Álíka margar tilkynningar um heimilisofbeldi bárust lögreglunni í febrúar og í janúar en það sem af er ári hafa borist um 25% fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan. Tilvikum þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fjölgaði á milli mánaða líkt og tilvikum þar sem lögreglumanni var hótað um ofbeldi.

Alls bárust 18 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í febrúar en það sem af er ári hafa borist um 17 prósent fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili árin 2018-2020.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru fimm stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í febrúar. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða líkt og tilkynningar þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í desember voru skráð 675 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 16 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.