24 Janúar 2023 10:10

Skráð voru 559 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í desember og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2022.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði töluvert á milli mánaða. Alls bárust 51 tilkynningar um innbrot í desember miðað við 85 tilkynningar í nóvember.

Alls bárust 118 tilkynningar um ofbeldisbrot í desember. Skráðar tilkynningar um heimilisofbeldi voru 67 í desember og fjölgaði þessum tilkynningum á milli mánaða.

Alls bárust 11 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í desember.

Í desember voru skráðar 107 tilkynningar um eignaspjöll og 21 tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og var eitt stórfellt fíkniefnabrot skráð í desember. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fækkaði.

Í desember voru skráð 569 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 13 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.