14 Febrúar 2017 10:32

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúarmánuð 2017 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust 694 tilkynningar um hegningarlagabrot í janúar, sem gerir um 22 tilkynningar dag hvern. Tilkynningarnar eru aðeins fleiri en þær voru í desember, en fjöldinn er þó innan reiknaðara marka fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði. Í janúar fjölgaði innbrotum, ofbeldisbrotum, ofbeldi gagnvart lögreglumanni, meiriháttar skemmdarverkum, akstri undir áhrifum ávana og fíkniefna og innbrotum á heimili miðað við fyrri mánuði. Kynferðisbrotum fækkaði. Hlutfallslega fjölgaði meiriháttar eignaspjöllum og innbrotum á heimili mest. Því er mikilvægt að fólk láti lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir og að það skrifi líka hjá sér, t.d. bílnúmer eða jafnvel lýsingar á fólki, ef eitthvað óvenjulegt á sér stað í nánasta umhverfi þess. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan. Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau. Sérstaklega er minnt á að útiljós séu kveikt þar sem þau eru til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverðu. Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin.

Upplýsingum má koma á framfæri í síma 444-1000, með einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eða í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu vegna yfirstandandi innbrots skal undantekningarlaust hringja í 112.