29 Febrúar 2020 10:03

Skráð voru 659 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í janúar og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúar 2020.

Tilkynningar um þjófnaði fækkaði á milli mánaða og var þar helst að sjá fækkun á þjófnaði á farsímum og reiðhjólum. Tilkynningum um innbrot fækkaði einnig töluvert á milli mánaða og hafa ekki verið skráðar jafn fáar tilkynningar um innbrot síðan í júlí 2018.

Skráðum ofbeldisbrotum fjölgaði nokkuð á milli mánaða og á fjölgunin við um bæði minniháttar og meiriháttar líkamsárásir. Það sem af er ári hafa borist um átta prósent fleiri tilkynningar um ofbeldisbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkar lítillega á milli mánaða og var eitt stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í janúar. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í desember voru skráð 662 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 20 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan. Vert er að taka fram að skráðum umferðarlagabrotum fækkaði töluvert miðaða við útreiknuð mörk fyrir síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan.