15 Júlí 2016 13:47

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júnímánuð 2016 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

 

Í júní var skráð 631 tilkynning um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglunni bárust 273 tilkynningar um þjófnaði sem gerir um 43 prósent allra tilkynntra hegningarlagabrota í júní. Eru þetta nokkuð færri tilkynningar en bárust í maí. Tilkynningum um innbrot fækkar töluvert og hefur lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu aðeins einu sinni borist jafn fáar tilkynningar í einum mánuði. Var það í febrúar árið 2014. Þess fyrir utan hafa tilkynningar ekki verið þetta fáar í einum mánuði frá því að samræmd skráning brota hóst hjá lögreglu árið 1999. Lögreglu bárust 23 tilkynningar um kynferðisbrot í júní sem er töluverð fjölgun á milli mánaða. Tilkynningar um kynferðisbrot eiga það til að fjölga yfir sumarmánuðina, þá sérstaklega tilkynningum um blygðunarsemisbrot.