22 Febrúar 2023 10:45

Skráð voru 608 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í janúar og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir janúar 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningar um um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 31 prósent fleiri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 111 tilkynningar um ofbeldisbrot í janúar og fjölgaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði lítillega á milli mánaða og fóru úr 67 tilkynningum í desember í 63 tilkynningar í janúar. Það sem af er ári hafa borist um 16 prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust sjö beiðnir um leit að börnum og ungmennum í janúar og fækkaði þessum beiðnum á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði töluvert á milli mánaða og var eitt stórfellt fíkniefnabrot skráð í janúar. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í febrúar voru skráð 536 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um þrjú prósent fleiri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.