21 Maí 2021 10:13

Skráð voru 777 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í apríl og fjölgar þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir apríl 2021.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Mestu fjölgunina var að sjá á tilkynningum um innbrot í heimili/einkalóð og í ökutæki.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum heimilisofbeldi en það sem af er ári hafa borist um 23 prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 12 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í apríl en það sem af er ári hafa borist um 11 prósent færri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili árin 2018-2020.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði töluvert á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í apríl. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði einnig á milli mánaða líkt og tilkynningar þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í desember voru skráð 719 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 19 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.