13 Júlí 2022 09:26

Skráð voru 771 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní 2022.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 13 prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 129 tilkynningar um ofbeldisbrot í júní og fjölgaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgaði einnig á milli mánaða og fóru úr 57 tilkynningum í maí í 75 tilkynningar í júní. Það sem af er ári hafa borist um eitt prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Alls bárust 12 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í júní.

Tilkynningum um eignaspjöll fjölgaði örlítið á milli mánaða sem og tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og voru þrjú stórfelld fíkniefnabrot skráð í júní. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í júní voru skráð 863 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 17 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.