15 Júlí 2020 10:06

Skráð voru 706 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní 2020.

Heilt yfir voru þeir brotaflokkar sem teknir eru fyrir í skýrslunni innan útreiknaðra marka en þó var að sjá fjölgun á minniháttar skemmdarverkum og umferðarlagabrotum. Mikil fækkun var á nytjastuldi ökutækja og fíkniefnabrotum ef miðað er við meðalfjölda brota síðustu 12 mánuði á undan.

Tilkynningar um þjófnaði fækkaði á milli mánaða og var þar helst að sjá fækkun á reiðhjólaþjófnaði. Tilkynningum um innbrot fjölgaði hins vegar á milli mánaða og fóru úr 44 í maí upp í 76 í júní. Vert er þó að taka fram að það sem af er ári hafa borist um 10 prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum ofbeldisbrotum fjölgaði á milli mánaða og voru það minniháttar líkamsárásir sem töldu þar mest. Tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fækkaði á milli mánaða. Álíka margar tilkynningar um heimilisofbeldi bárust í júní og í maí.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði töluvert á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í júní. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði einnig á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í júní voru skráð 850 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 25 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.