21 Nóvember 2022 13:19

Skráð voru 876 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í október og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir október 2022.

Tilkynningum um þjófnað fækkaði á milli mánaða. Alls bárust 106 tilkynningar um innbrot í október miðað við 102 tilkynningar í september.

Alls bárust 129 tilkynningar um ofbeldisbrot í október og fjölgaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Álíka margar tilkynningar bárust um heimilisofbeldi í október og september. Alls bárust bárust 21 tilkynningar um kynferðisbrot sem áttu sér stað í október.

Alls bárust 18 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í október.

Tilkynningum um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fjölgaði töluvert á milli mánaða og sem og tilkynningum um eignaspjöll.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru þrjú stórfelld fíkniefnabrot skráð í október. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í september voru skráð 864 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 13 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.