20 Mars 2019 10:42

Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir febrúarmánuð 2019 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu. Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.

Skráð voru 536 hegningarlagabrot í málaskrá lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í febrúar sl. Hegningarlagabrotum fækkaði töluvert miðað við meðalfjölda síðastliðna sex og 12 mánuði á undan. Heilt yfir fækkaði tilkynningum í þeim brotaflokkum sem teknir eru fyrir í þessari skýrslu miðað við fjölda síðustu 12 mánuði á undan. Til að mynda fækkaði tilkynningum um þjófnaði, nytjastuld ökutækja, eignaspjöll og ölvun við akstur milli mánaða. Tilkynningum um innbrot fækkaði einnig á allar tegundir vettvanga nema í ökutæki. Tilkynntum ofbeldisbrotum fækkaði í febrúar miðað við síðustu mánuði á undan og hafa skráð ofbeldisbrot ekki verið færri síðan í júní 2017. Ofbeldi gagnvart lögreglumönnum fjölgaði milli mánaða en átta tilvik voru skráð í febrúar samanber einu tilviki í janúar.