29 Desember 2022 11:00

Skráð voru 707 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í nóvember og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir nóvember 2022.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði töluvertá milli mánaða. Alls bárust 83 tilkynningar um innbrot í nóvember miðað við 107 tilkynningar í október.

Alls bárust 116 tilkynningar um ofbeldisbrot í nóvember og fækkaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Alls bárust 44 tilkynningar um heimilisofbeldi í nóvember. Alls bárust 13 tilkynningar um kynferðisbrot sem áttu sér stað í nóvember.

Alls bárust 16 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í nóvember.

Í nóvember voru skráðar 114 tilkynningar um eignaspjöll og 16 tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og voru fjögur stórfelld fíkniefnabrot skráð í nóvember.  Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í nóvember voru skráð 663 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 13 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.