16 Mars 2022 13:50

Skráð voru 524 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í febrúar og fækkaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir febrúar 2022.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningar um um innbrot. Það sem af er ári hafa borist um 20 prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Alls bárust 87 tilkynningar um ofbeldisbrot í febrúar og fækkaði þessum tilkynningum á milli mánaða. Tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði einnig á milli mánaða og fóru úr 71 tilkynningum í janúar í 52 tilkynningar í febrúar. Það sem af er ári hafa borist um sex prósent fleiri tilkynningar samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan.

Alls bárust átta beiðnir um leit að börnum og ungmennum í febrúar og fækkaði þessum beiðnum á milli mánaða.

Tilkynningum um eignaspjöll fækkaði á milli mánaða en tilkynningar um nytjastuld á vélknúnum ökutækjum fjölgaði.

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og voru tvö stórfelld fíkniefnabrot skráð í febrúar. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fjölgaði.

Í febrúar voru skráð 493 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum). Það sem af er ári hafa verið skráð um 33 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.