4 Júlí 2016 16:05

Fyrr í dag var lögreglumönnum í tveimur ökutækjum Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu veitt heimild til að grípa til vopna, en það var gert í kjölfar tilkynningar um mann vopnaðan afsagaðri haglabyssu en til hans sást á bifreiðastæði við Kringluna. Skömmu síðar var tilkynnt um mann með haglabyssu á Grensásvegi og hann sagður hafi skotið úr henni á rúðu í húsi við götuna og sömuleiðis ökutæki sem þar var. Lögreglan hóf þegar leit að manninum eftir að fyrri tilkynningin barst og hafði við að styðjast bæði lýsingu á manninum og bíl sem hann var á. Sérsveit ríkislögreglustjóra var strax kölluð til, en lögreglumenn frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru henni til aðstoðar. Bíll mannsins fannst svo nokkru síðar í öðru hverfi borgarinnar og maðurinn sömuleiðis. Sérsveitin handtók manninn og þrjá til viðbótar, auk þess sem haglabyssa fannst í húsi steinsnar frá bíl mannsins. Við frumrannsókn er ekkert sem bendir til að hleypt hafi verið af byssunni á fyrrnefndum stöðum, en rúðubrotið á Grensásvegi er rakið til annars. Fjórmenningarnir, sem nú eru í haldi, hafi allir áður komið við sögu hjá lögreglu.