25 Október 2023 15:06

Alls bárust 710 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í september. Um helmingur brotanna voru með skráðan vettvang á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir september 2023.

 

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði töluvert á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Flestar tilkynningar um innbrot í september voru innbrot í fyrirtæki og/eða stofnanir.

 

Alls bárust 106 tilkynningar um ofbeldisbrot í september. Tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði á milli mánaða og fóru úr 57 tilkynningum í ágúst í 45 tilkynningar í september. Það sem af er ári hafa borist um 11 prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Í september voru skráð þrjú tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi.

 

Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 33 tilkynningar um kynferðisbrot í september, um 14 þeirra tilkynninga voru vegna brota sem áttu sér stað í september.

 

Alls bárust 15 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í september.

 

Skráðum fíkniefnabrotum fækkaði á milli mánaða og voru skráð fjögur stórfelld fíkniefnabrot í september. Heilt yfir hafa þó verið skráð um 27 prósent færri fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu en voru skráð að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

 

Í september var skráð 629 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) á höfuðborgarsvæðinu. Það sem af er ári hafa verið skráð um sjö prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.