17 Júlí 2023 15:01

Alls barst 801 tilkynning um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júní. Um helmingur brotanna voru með skráðan vettvang á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júní 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða, en voru þó álíka margar og að meðaltali síðustu 12 mánuði á undan. Tilkynnt innbrot voru færri í júní en verið hefur að meðaltali síðustu 12 mánuði á undan. Flestar tilkynningar um innbrot í júní voru innbrot í fyrirtæki og/eða stofnanir.

Alls bárust 117 tilkynningar um ofbeldisbrot í júní. Tilkynningar um heimilisofbeldi fjölgaði nokkuð á milli mánaða og fóru úr 55 tilkynningum í maí í 72 tilkynningar í júní. Það sem af er ári hafa borist um tíu prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Í júní voru skráð þrjú tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi og eitt tilvik þar sem lögreglumanni var hótað ofbeldi og eru það færri tilvik en að meðaltali síðustu 12 mánuði á undan.

Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 38 tilkynningar um kynferðisbrot í júní, um 16 þeirra tilkynninga voru vegna brota sem áttu sér stað í júní. Er þetta nokkur fjölgun tilkynninga miðað við meðaltal síðustu sex og síðustu 12 mánuði á undan. Mest fjölgaði tilkynningum um kynferðislega áreitni.

Alls bárust 25 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í júní. Ekki hafa borist fleiri beiðnir um leit að börnum og ungmennum síðan í júní 2020 þegar 25 beiðnir bárust.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði á milli mánaða og voru skráð þrjú stórfellt fíkniefnabrot í júní. Heilt yfir hafa þó verið skráð um 33 prósent færri fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu en voru skráð að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem en tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur fækkaði.

Í júní var skráð 761 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) á höfuðborgarsvæðinu. Það sem af er ári hafa verið skráð um átta prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.