20 Ágúst 2014 12:00

Stjarnan og Inter Milan mætast í Evrópukeppninni í knattspyrnu í kvöld, en leikið er á Laugardalsvelli og hefst viðureign félaganna kl. 21. Ljóst er að ekki geta allir vallargestir lagt bílum sínum við Laugardalsvöllinn en í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Þess má geta að veðurútlitið er gott og því ætti engum að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum. Uppselt er á leikinn í kvöld og því viðbúið að mikil umferð verði í Laugardalnum og nágrenni hans, en fólk er hvatt til að mæta tímanlega á völlinn. Ökumenn er minntir á að leggja löglega. Að öðrum kosti mega þeir búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð. Á myndinni, sem birt er með góðfúslegu leyfi Stjörnunnar, má sjá einn hinna skæðu leikmanna Garðbæinga, Arnar Má Björgvinsson, en vonandi gengur honum og liðsfélögum hans vel í baráttunni við ítalska stórliðið frá Mílanó.