3 Júní 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Þetta er nefnt hér sérstaklega vegna landsleiks Íslendinga og Dana í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld. Reynsla síðustu ára sýnir að bílastæði við völlinn eru ekki fullnýtt þegar ýmsir stórviðburðir fara þar fram. Þess í stað hafa margir lagt það í vana sinn að leggja ólöglega á Reykjavegi og Engjavegi  svo aðeins tvær götur séu nefndar. Sömuleiðis er iðulega lagt ólöglega á ýmis grassvæði í Laugardalnum. Lögreglan ítrekar því tilmæli sín til ökumanna og hvetur þá til að nýta bílastæðin til fulls. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð.

Um síðustu helgi var ástandið í Laugardalnum, eins og að framan er lýst. Þá lögðu margir ólöglega þrátt fyrir að mörg bílastæði væru í boði. Myndin hér að neðan sýnir þetta glögglega en þessi bílastæði voru ónotuð á meðan bílum var ítrekað lagt ólöglega á svæðinu, líkt og sjá má á efri myndinni. Þeim vallargestum sem fá ekki bílastæði við Laugardalsvöllinn sjálfan er bent á að í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Sömuleiðis er minnt á að veðurútlitið er þannig að engum ætti að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum.