16 Október 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um Laugardalinn að nýta þau bílastæði sem þar eru í stað þess að leggja ólöglega á eða við götur á svæðinu. Þetta er nefnt hér sérstaklega vegna landsleiks Íslendinga og Svisslendinga í knattspyrnu sem fram fer á Laugardalsvellinum í kvöld kl. 18.30. Reynsla síðustu ára sýnir að bílastæði við völlinn eru ekki fullnýtt þegar ýmsir stórviðburðir fara þar fram. Þess í stað hafa margir lagt það í vana sinn að leggja ólöglega á Reykjavegi og Engjavegi  svo aðeins tvær götur séu nefndar. Sömuleiðis er iðulega lagt ólöglega á ýmis grassvæði í Laugardalnum. Lögreglan ítrekar því tilmæli sín til ökumanna og hvetur þá til að nýta bílastæðin til fulls. Að öðrum kosti mega ökumenn búast við sektum vegna stöðubrota en gjaldið, 5000 kr., rennur í Bílastæðasjóð.

Ljóst er að ekki geta allir vallargestir lagt bílum sínum við Laugardalsvöllinn en í nágrenni hans eru víða ágæt bílastæði. Þess má geta að veðurútlitið er gott og því ætti engum að muna um að leggja smáspöl frá leikvanginum og ganga í fáeinar mínútur að vellinum. Á meðfylgjandi korti eru ágætar upplýsingar um bílastæði í Laugardalnum en þessu til viðbótar má einnig minna á bílastæði ofan við Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og við TBR-húsið.