6 Apríl 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um vesturbæ Reykjavíkur að virða rétt gangandi vegfarenda og leggja ekki á gangstéttir eða á göngustígum. Þeir ökumenn sem leggja ólöglega mega búast við sektum.

Þetta er nefnt hér sérstaklega vegna þess að annað kvöld, fimmtudaginn 7. apríl, mætast KR og Keflavík í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta en leikurinn fer fram í íþróttahúsinu við Frostaskjól og hefst kl. 19.15. Búast má við fjölmenni á leikinn og því er hætta á að vandræði skapist og að lítið verði um bílastæði við íþróttahúsið. Stuðningsmönnum liðanna er því bent á þann möguleika að finna sér bílastæði annars staðar í hverfinu og taka á sig stutta gönguferð að íþróttahúsinu.