15 September 2019 11:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalinn hafa verið tilnefnd til verðlaunanna Media Management Award 2019, en það var sameiginlegt verkefni stofnananna, þar sem notast var við Digital Asset Management lausn, sem vakti athygli dómnefndarinnar. Verkefni Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalans sneri að vörslu og dreifingu viðkvæmra gagna þar sem þarf bæði að tryggja öryggi þeirra og aðgengi skilgreindra notenda með skilvísum og fljótlegum hætti. Viðkvæmu gögnin sem vísað er til eru myndir sendar frá Neyðarmóttökunni til tæknideildar lögreglu, auk mynda sem tæknideild sendir réttarmeinafræðingum spítalans og öfugt. Öll varsla þessara mynda er nú með miklu öruggari hætti en áður, auk þess sem verkefnið leiðir líka til tímasparnaðar og hagræðingar.

Úrslitin verða tilkynnt í þessari viku, en það var Þekking, samstarfsaðili FotoWare á Íslandi,  sem vann að verkefninu með Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Landspítalanum. Lesa má nánar um verðlaunin á heimasíðunni hér að neðan.

Media Mangement Award