18 September 2008 12:00

Undanfarna daga hefur borið nokkuð á hótel- og gistirýmispöntunum erlendis frá þar sem uppgefin eru erlend kortanúmer til greiðslu. Síðan er hætt við bókun og viðkomandi seljandi þjónustu beðinn að endurgreiða færslurnar beint með peningasendingu erlendis. Í öllum tilfellum er þetta aðili sem kynnir sig sem Kazim Abdul. Lögreglan vill benda hótel- og gistihúsaeigendum og starfsfólki þeirra á að verða ekki við slíkum beiðnum ef hinn minnsti vafi leikur á að um lögmæt viðskipti geti verið að ræða.