25 Janúar 2024 11:38

Alls bárust 735 tilkynningar um hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í desember. Rúmlega helmingur brotanna voru með skráðan vettvang á svæði lögreglustöðvar 1, sem nær yfir Miðborg, Vesturbæ, Seltjarnarnes, Háaleiti, Hlíðar og Laugardal. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2023.

Tilkynningum um þjófnaði fækkaði á milli mánaða sem og tilkynningum um innbrot. Flestar tilkynningar um innbrot í nóvember voru innbrot í fyrirtæki og/eða stofnanir.

Alls bárust 134 tilkynningar um ofbeldisbrot í desember. Tilkynningar um heimilisofbeldi fækkaði örlítið á milli mánaða og fóru úr 76 tilkynningum í nóvember í 71 tilkynningu í desember. Það sem af er ári hafa borist um fjögur prósent færri tilkynningar um heimilisofbeldi samanborið við meðalfjölda sama tímabils síðustu þrjú ár á undan. Í desember voru skráð 17 tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi. Ekki hafa verið skráð jafn mörg tilvik síðan samræmdar skráningar í lögreglukerfi hófust.

Alls bárust lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu 21 tilkynning um kynferðisbrot í desember, um 12 þeirra tilkynninga voru vegna brota sem áttu sér stað í desember.

Alls bárust 23 beiðnir um leit að börnum og ungmennum í desember. Það sem af er ári hafa borist um 29 prósent fleiri leitarbeiðnir en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði töluvert á milli mánaða og voru skráð fimm stórfelld fíkniefnabrot í desember. Heilt yfir hafa verið skráð um 20 prósent færri fíkniefnabrot á höfuðborgarsvæðinu en voru skráð að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár á undan. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í desember voru skráð 587 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) á höfuðborgarsvæðinu. Það sem af er ári hafa verið skráð um sex prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en hafa verið skráð að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.