23 Nóvember 2010 12:00

Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina og voru þær flestar minniháttar. Fimm þeirra áttu sér stað í miðborginni en hinar á ýmsum stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Ein sú grófasta átti sér stað aðfaranótt sunnudags en þá var karl á þrítugsaldri sleginn í höfuðið með bjórflösku. Maðurinn kom sér sjálfur á slysadeild en hann fékk stóran skurð á ennið auk þess sem brotnaði upp úr nokkrum af tönnum hans.