3 September 2007 12:00

Tíu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina en helmingur þeirra átti sér stað í miðborginni. Í biðröð við skemmtistað fékk piltur um tvítugt högg á andlitið og skarst illa en árásarmannsins er enn leitað. Inni á öðrum skemmtistað var dyravörður kýldur af konu sem virtist eiga erfitt með að sætta sig við að búið var loka staðnum en til stóð að vísa henni út. Rúmlega hálffertugur karl lenti í átökum í Lækjargötu. Hann var með áverka á höfði og var fluttur á slysadeild, líkt og kona á þrítugsaldri sem skarst á hendi en ekki er með öllu ljóst hvernig hún varð fyrir þeim skaða. Þá slógust tvær konur við karl á fertugsaldri en þær ætluðu að hafa af honum tómar gosdrykkjarumbúðir sem hann hafði safnað.

Piltur um tvítugt skarst á höfði þegar hann hugðist gera upp sakir við hálfþrítugan karl í Háaleitishverfi. Í Grafarvogi kom til ryskinga ungmenna og var einn 17 ára piltur aumur eftir þau viðskipti. Stúlku á svipuðum aldri var hrint harkalega í Breiðholti þegar hún ætlaði að kalla til lögreglu í kjölfar þess að símanum hennar var stolið. Jafnaldra hennar í Hafnarfirði marðist á höfði þegar í hana var kastað flösku og í Kópavogi handtók lögreglan karl á miðjum aldri en sá hafði lagt hendur á konuna sína.