13 Apríl 2010 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sjö voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðarbæ. Tveir voru teknir á laugardag og átta á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 20-53 ára. Þrír þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Á sama tímabil var einn ökumaður tekinn fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sá var stöðvaður í Reykjavík en um var að ræða karl á þrítugsaldri.