8 Febrúar 2011 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Níu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 21-67 ára og ein kona, 45 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.