29 Ágúst 2011 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru átta karlar á aldrinum 20-63 ára og tvær konur, 21 og 31 árs. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.