31 Janúar 2012 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Þrír voru teknir á laugardag, fimm á sunnudag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru átta karlar á aldrinum 25-61 árs og tvær konur, 18 og 21 árs. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.