7 Febrúar 2012 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Garðabæ. Fjórir voru teknir á laugardag og sex á sunnudag. Þetta voru sjö karlar á aldrinum 18-51 árs og þrjár konur, 21-23 ára. Tveir þessara ökumanna hafa aldrei öðlast ökuréttindi.