2 September 2008 12:00
Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, fimm á laugardag og fjórir á sunnudag. Sex voru teknir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Kópavogi og Mosfellsbæ. Þetta voru átta karlar á aldrinum 18-45 ára og tvær konur, 25 og 36 ára. Fimm karlanna eru á þrítugsaldri, einn á fimmtugsaldri og tveir undir tvítugu. Tveir af þessum ökumönnum reyndust jafnframt vera próflausir.