2 Mars 2009 12:00

Tíu ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, fjórir á laugardag og fimm á sunnudag. Sjö voru teknir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Kópavogi. Þetta voru níu karlar á aldrinum 18-38 ára og ein kona, 17 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og þrír höfðu aldrei öðlast ökuréttindi.