24 Maí 2007 12:00

Stuðningsmenn Liverpool tóku ósigrinum gegn AC Milan í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld misvel en einhverjir þeirra létu skapið hlaupa með sig í gönur. Lögreglan var kölluð að veitingahúsi á höfuðborgarsvæðinu þar sem fáeinir eldheitir Púlarar höfðu brotið glös í bræði sinni þegar úrslitin lágu fyrir. Enginn var þó handtekinn vegna þessa. Á öðru veitingahúsi í umdæminu fóru aðdáendur AC Milan fram úr sjálfum sér í gleðilátum og kom til ryskinga. Engan sakaði. Í miðborginni höfðu lögreglumenn svo afskipti af stuðningsmanni Liverpool eftir ábendingu frá vegfaranda. Knattspyrnuáhugamaðurinn hafði setið sem fastast í bílnum sínum í dágóða stund og var jafnvel talið að hann væri sofandi eða í annarlegu ástandi. Svo var þó ekki en vissulega var maðurinn mjög miður sín. Hann var ekki búinn að jafna sig eftir ósigurinn í úrslitaleiknum og sagðist aðspurður ekki treysta sér til að aka áfram að svo stöddu. Þess má geta að AC Milan vann leikinn, 2-1.