15 Ágúst 2011 12:00

Um helgina voru tólf ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Níu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og þrír í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, sex á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru níu karlar á aldrinum 20-42 ára og þrjár konur á þrítugsaldri. Sjö þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.