1 Júní 2010 12:00

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Átta voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Garðabæ og einn í Kópavogi og á Seltjarnarnesi. Sjö voru teknir á laugardag, fjórir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru tíu karlar á aldrinum 19-52 ára og tvær konur, 37 og 44 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu aldrei öðlast ökuréttindi og einn hafði þegar verið sviptur ökuleyfi en sá var jafnframt á stolnum bíl.