10 Ágúst 2010 12:00

Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Tveir voru teknir á laugardag, níu á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru átta karlar á aldrinum 19-58 ára og fjórar konur, 21-69 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.